föstudagur, nóvember 21, 2008

- Allt gott að frétta úr Danaveldi :)
- Kom smá snjókoma í dag og ég fékk þvílíkan jólafiðring í magann en því miður hurfu flest snjókornin um leið og þau snertu jörðina. En samt sem áður mjög jólalegt :)
- Kristján Ari er alltaf að verða meiri gaur og fullorðnari og alltaf meiri og meiri persóna einhvernvegin (vonandi fattið þið hvað ég meina). Hann hikar ekki að nota þá frasa á okkur sem við notum á hann eins og t.d. "hvað var ég að segja" " nei þetta máttu ekki gera " osfrv.
Hann er líka að verða betri og betri í dönskunni og það eru farin að slæðast inn dönsk orð hjá honum. Hann segir t.d. "ég ætla lige inn í herbergi, eða lige inn í eldhús" og um daginn meiddi hann sig á hendinni í leikskólanum og sagði mér að hann hefði meitt sig i armen út á legepladsen :)
- Fyrir þá sem vita það ekki þá ætlum við að vera hér úti um jólin og ef ykkur vantar addressuna fyrir jólakort er hægt að senda mér boð inn á Facebook eða í tölvupósti

laugardagur, október 04, 2008

Það er alltaf næs þegar helgin er komin. Er svo sem ekki mikið planað, ætlum bara að vera í rólegheitum. Ég ætla kannski að kíkja með Eddu á flóamarkað í dag, hver veit nema maður finni einhvern fjársjóð þar.
Hér er ágætis haustveður, sólin skín og hitinn um 10-12 stig.

Erum byrjuð með Kristján í barnaleikfimi og það er meiriháttar gaman. Engin smá útrás sem hann fær þarna og yndislegt að fylgjast með hversu vel hann skemmtir sér. Þetta eru börn frá 2-5 ára, algjör krútt.

Mamma og pabbi ætla svo að kíkja í heimsókn 15. - 19. október. Það verður gaman að fá þau hingað og er Kristján Ari orðinn mjög spenntur :) Alltaf gaman að fá ömmu og afa í heimsókn til að dekra aðeins við sig.

föstudagur, september 05, 2008

Vá 3 mánuðir síðan ég bloggaði síðast !!!!

Af okkur er bara allt fínt að frétta og lífið að komast aftur í eðlilega rútínu eftir sumarið. Jenni er byrjaður í skólanum og Kristján er komin á eldri deildina á leikskólanum (börnehaven). Kristján Ari náði sér í hlaupabólu í leikskólanum og er þakinn í bólum greyið. Hann má víst ekki fara strax á leikskólann þar sem þetta er svo smitandi.

Ég er ægilega myndarleg núna, er að prjóna lopapeysu á Jenna. Er búin að prjóna búkinn upp að bringu og er núna byrjuð á annarri erminni. Ég lendi fyrst í vandræðum þegar ég þarf að tengja ermarnar við búkinn. Núna hef ég enga mömmu til að hjálpa mér, spurning hvort ég reddi þessi ekki bara samt sjálf :)

Annars eru það bara rólegheit í kvöld og snemma í rúmið, vinna á morgun nefnilega :(
Væri svo til í að þurfa ekki að vinna á laugardögum, það er samt ekki eins og þetta sé rosaleg vinna. Ég er bara í 4 tíma frá 9-13 en það er bara að þurfa að rífa sig snemma á laugardagsmorgni út úr húsi í vinnu sem heillar ekki.

mánudagur, júní 16, 2008

Seinasti mánuður í myndum og örfáum orðum :)

Ég og Kristján Ari fórum til Íslands í lok maí meðal annars til að vera í stúdentsveislu Vals. Það var rosalega gaman og skelltum við Edda og Benni okkur með litla bró á djammið í Venus eftir veisluna og skemmtum okkur konunglega.

Við gerðum margt skemmtilegt á meðan við vorum á Íslandi og var næstum hver dagur pakkaður. Náðum að hitta sem flesta en aðalmálið var nátturulega fyrir ömmurnar og afana að hitta Kristján Ara.
Frændurnir að snæðingi á Vegamótum.

Valur kom svo með okkur tilbaka og var í Kaupmannahöfn í 3 nætur og var heldur betur heppinn með veðrið.
Valur var fram á mánudag og svo komu Þórey og Elsa á miðvikudeginum (4. júní) og voru hjá okkur í 5 nætur. Það var æðislega gaman að fá þær hingað og við Kristján Ari brölluðum ýmislegt með þeim í góða veðrinu. Fórum meðal annars í Tívolíið og það fannst Kristjáni alls ekki leiðinlegt. Hann var líka mjög hrifinn af stelpunum og lítur á þær sem vinkonur sínar og er enn að spyrja hvar Þórey og Elsa séu :) Jenni greyið var fjarri öllu gamni enda fastur í próflestri :(

Kristjáni fannst þessi hringekja skemmtilegust.


Vinirnir að gæða sé á ís :)


Maja, Þóra, Elsa, Þórey og ég (Arna er myndasmiðurinn)

Hittumst Spatúlurnar á laugardagskvöldið (8.júní) og borðuðum saman á Omami, sem er japanskur staður, rosalega flottur og með mjög góðan mat. Á sunnudagskvöldið hittumst við aftur (mínus Þóra) á Kylie Minogue tónleikum sem voru hreint út sagt geðveikir. Ég hef aldrei séð þvílíkt sjóv á tónleikum.

Það er sem sagt búið að gerast heilmikið síðasta mánuðinn eða svo og ennþá meira action framundan. Mamma, pabbi og amma koma á föstudaginn og verða til 1. júlí. 28. júní koma tengdó, Villi, Gunna og Grímur og verða í tvær vikur og svo er það náttúrulega Hróarskelda fyrstu helgina í júlí :)

mánudagur, maí 05, 2008

Kristján Ari eignaðist þetta flotta hjól í dag og var ekkert smá ánægður með það. Við erum svo heppin að vera með góðan garð þar sem er nóg pláss til að æfa sig á hjólinu :)

Helgin var mjög fín hjá okkur og vorum við mjög lítið heima við enda gott veður og um að gera að nýta sér það. Við fórum á laugardaginn í Frederiksberg Have í piknik með Spatúlunum og höfðum það gott. Um kvöldið buðu Svana og Atli, sem eru ein af íslensku fjölskyldunum á Borups Allé, í grillveislu og sátum við bara úti og borðuðum og krakkarnir ærsluðust í garðinum á meðan. Við erum 8 íslenskar fjölskyldur hérna og allir með börn svo að það er oft mikið fjör hérna úti í garði.

Kristján Ari í Frederiksberg Have

Ég og Kristján Ari úti í rigningunni á föstudaginn. Við fórum í göngutúr um hverfið og það var náttúrulega nauðsynlegt að hoppa í öllum pollunum á leiðinni :)

17 dagar í Íslandsför :)

föstudagur, apríl 25, 2008

Hérna kemur ein mynd af sætu frændunum, það var mikið fjör hjá þeim þegar Grímur Steinn kom í heimsókn í byrjun apríl.


Af okkur er allt gott að frétta eins og alltaf nema að verkfall hjá leiðbeinendum á leikskólum setur strik í reikninginn. Út af þessu verkfalli getur leikskólinn ekki haft öll börnin í einu þannig að þeim er deilt niður á dagana. Við höfum nú verið heppin hingað til því að það hefur alltaf hist á að Jenni er í fríi í skólanum þegar Kristján hefur þurft að vera heima þannig að ég hef ekkert misst úr vinnu. Ég verð reyndar að vera heima á mánudaginn með hann sem verður bara mjög næs. Kristján fær svo að fara á leikskólann á þriðjudag og miðvikudag og svo eru frídagar fimmtudag og föstudag. Það reddast því á fimmtudaginn er uppstigningadagur sem er almennur frídagur og svo vinn ég ekki á föstudögum. Framhaldið er svo alveg óráðið. Maður er búinn að vera að heyra að það sé möguleiki að leikskólakennararnir fari líka í verkfall og þá lokar náttúrulega leikskólinn alveg. Guð ég vona bara að það gerist ekki því þá veit ég ekki hvað við gerum.

Vorið er komið með fullum krafti og veðrið búið að vera yndislegt alla vikuna. Spáin er góð áfram og á sunnudaginn er spáð að hitinn eigi að komast upp í 18 stig. Mmmmmm ég vona að það rætist :)

Í dag eru 27 dagar þangað til ég kem í heimsókn til Íslands. Ég verð nú að viðurkenna það að ég hlakka rosalega til.

fimmtudagur, apríl 10, 2008

Ég er orðin húkt á youtube, mér finnst þetta algjör snilld. Ég veit ég er aðeins sein að fatta og allir aðrir búinr að uppgötva youtube langt á undan mér, en betra er seint en aldrei.

Var t.d. að horfa á þetta myndband með Moloko. Ég fíla þá hljómsveit í botn og þetta lag er geðveikt. Söngkonan (Roisin Murphy minnir mig að hún heiti) er algjör töffari og fáránlega góð söngkona.
Ætla að prófa að setja myndbandið hérna inn, vonandi virkar það:

föstudagur, apríl 04, 2008

Jæja þá best að skrifa eitthvað á þetta blessaða blogg, þetta er búin að vera nokkuð löng pása. Af okkur er bara allt fínt að frétta og lífið gengur sinn vanagang. Það er farið að vora hér og hitastigið komið upp í 10 gráðurnar. Allt að verða grænt og yndislegt.

Núna er smá gestahrina í gangi. Edda og Benni komu um páskana og voru alveg í 5 daga. Það var æðislegt að fá þau og maður gat aðeins dreift huganum eftir það sem á undan var gengið. Þau voru nú ekkert heppin með veður því að það kom sko sannkallað páskahret með snjó og tilheyrandi. En þau létu það nú ekkert á sig fá og skemmtu sér vel. Kristján Ari var alveg ægilega ánægður að fá Eddu sína í heimsókn.


Edda og Kristján Ari að fá sér hressingu í Fields



Nú eru tengdó, Villi og Grímur Steinn í heimsókn. Þau komu í hádeginu í gær og verða fram á mánudag. Við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt um helgina, kíkja á Strikið, fara út að borða, kíkja í dýragarðinn o.fl.

Ég og Jenni skelltum okkur óvænt á tónleika á mánudagskvöldið með tónlistarmanni sem heitir Patrick Watson. Ég sá auglýsingu í blaðinu í hádeginu á mánudag og mundi eftir að hafa heyrt tvö góð lög með honum og nefndi við Jenna að við ættum nú bara að skella okkur. Jenni hringdi í Kidda sem var alveg til í að koma og passa. Tónleikarnir voru í Kristjaníu og kostaði bara 90 kr inn. Þetta voru meiriháttar tónleikar og ég mæli með að þið tékkið á þessum gaur. Alveg frábær karakter og með geiðveikt góða söngrödd. Þetta kvöld sló ég tvær flugur í einu höggi, fór í Kristjaníu (hef ekkert farið síðan ég flutti hingað) og fór á frábæra tónleika.

föstudagur, janúar 25, 2008

Kristján og Grettir eru miklir vinir :)

Það var kominn tími til að ýta þessari lús neðar á síðuna og setja inn skemmtilegri mynd :) Þarna sjást þeir vinir Kristján Ari og Grettir (sem hann fékk í jólagjöf frá Kidda vini hans Jenna). Kristján Ari les fyrir Gretti, svæfir hann og ýmislegt fleira. Mjög fyndið að fylgjast með því.

Á okkar heimili herja veikindi :( Jenni er búin að vera veikur síðan á mánudaginn og Kristján síðan á miðvikudaginn. Ég er búin að vera á mörkunum í rúma viku mætti svo í vinnuna í gær hundslöpp og er þ.a.l. búin að liggja eins og skata í dag. Kvef, hálsbólga, beinverkir, mikið fjör sem sagt. Ég vona að ég verði betri á morgun þar sem ég þarf að vinna en það er sem betur fer bara milli 9 og 13.

miðvikudagur, janúar 09, 2008

Hérna er mynd af hinu geðslega kvikyndi lúsinni !!! Það er greinilega lúsafaraldur í Vesterbro hverfinu því að ég er búin að vera að selja lúsameðöl grimmt. Ég fæ alveg hroll, get ekki hugsað mér að þurfa að standa í þessum nokkurn tíman. En með barn á leikskólaaldri eru líkurnar alveg þónokkrar að maður lendi í þessu. Til að kóróna allt saman í dag þá kom kona alveg í öngum sínum inn í apótekið og sagðist halda að hún væri með lús og hvort ég vissi nokkuð hvernig þær litu út. Ég sagðist nú vera þokkalega viss um það. Haldiði að hún hafi ekki skellt eldhúspappír samanbrotnum á afgreiðsluborðið, opnaði hann, benti svo á og sagði "heldurðu að þetta sé ekki lús?". Blasir ekki bara við mér lús rétt við andlitið á mér og hún var alls ekki svo lítil, sást bara mjög vel. Ég þurfti á öllu mínu til að halda andlitinu, fékk alveg hroll upp og niður líkamann. Mér fannst þetta nú svoldið spes að koma bara með lúsina í apótekið. Ég brosti bara blítt og seldi henni lúsameðal og lúsakamb en mér klæjaði í hausnum það sem eftir var dags !!!

Í dag var ég í fyrsta skipti með kennslustund fyrir lyfjatækninema en það er partur af starfinu. Ég er búin að vera að deyja yfir þessu og með í maganum síðustu daga en þetta gekk bara ágætlega og nemarnir skildum alveg dönskuna mína. Ég er bara svo fegin að þetta er búið, það er alltaf erfitt að demba sér út í eitthvað nýtt í fyrsta skipti.

Jenni kláraði prófin í dag og honum gekk bara ágætlega held ég. Mikill léttir fyrir hann og nú er hann kominn í smá frí fram í næstu viku.

sunnudagur, janúar 06, 2008

Fjölskyldan við jólatréð á aðfangadagskvöld.


Kristján Ari flottur hjá pökkunum og jólatrénu.


Þá erum við komin aftur til Kaupmannahafnar eftir æðislegt jólafrí á Íslandi. Við vorum á ferðinni á milli Reykjavíkur og Borgarnes allan tíman og skiptum tímanum okkar þar á milli. Við náðum að hitta flesta vini okkar og fjölskyldu án þess að þetta yrði neitt span né kapphlaup við tímann. Höfðum það rosalega gott og gaman að hitta alla. Á aðfangadagskvöld vorum við í Borgarnesi, hjá ömmu og afa á jóladag og frænku hans Jenna á annan í jólum. 27. hittumst við svo Spatúlur með börnum heima hjá Þórey og það var mjög gaman. 29. átti ég svo ammæli og heimasætan er bara orðin þrjátíu OG eins. Svoldið skrýtið að vera orðin þrjátíu og eitthvað :) Fórum út að borða um kvöldið á Ban Thai með Önnu K, Valdísi, Jóa, Ólöfu, Hrafni og Stínu og kítkum svo í bæinn á eftir. 30. des vorum við svo öll í mat í Borgarnesi, ég, Jenni, Kristján Ari, Edda, Benni og þremenningarnir á Þórólfsgötu. Kvöldið endaði svo í leirspilinu og Trivial. Á gamlárskvöld vorum við öll hjá tengdó í Kópavoginum. Gunna og Steina snöruðu fram dýrindis máltíð, humarsúpu í forrétt, nautakjöti í aðalrétt og beilís frómas (veit ekki hvernig þetta er skrifað rétt) í eftirrétt. Litlu strákarnir voru í miklu fjöri en Kristjáni fannst sprengjurnar samt skemmtilegri úr fjarlægð og var bara inni hjá afa sínum meðan við sprengdum. Eftir miðnætti fórum við með Gunnu og Villa á Oliver og skemmtum okkur langt fram á nótt.

Á morgun byrjar svo alvara lífsins og ég viðurkenni að ég er með smá í maganum að fara í vinnuna. Það verður samt fínt að byrja í rútínunni aftur. Nú getur maður farið að hlakka til vorsins sem er svona næstum því á næsta leiti ;)

sunnudagur, nóvember 25, 2007

Edda systir kom í heimsókn í byrjun nóvember.

Fórum að sjá Arcade Fire þann 7. nóvember og þau voru geðveik.


Kristján krúttlegur í súperman náttfötunum sínum.


Mamma og pabbi komu í heimsókn 19.-22. október.

Hér fyrir ofan eru nokkrar myndir af því sem hefur gerst hjá okkur síðan ég bloggaði síðast :)
Allt gott að frétta af okkur og fer heldur betur að styttast í að við komum í heimsókn til Íslands. Í dag eru 24 dagar þangað til og ég er farin að hlakka rosalega mikið til. Núna er ég búin að vera að vinna í mánuð og líst bara ágætlega á djobbið. Fyrstu vikurnar voru mjög erfiðar og mér fannst ég ekki skilja neitt en núna er þetta allt að koma og það gengur bara vel að afgreiða Danina :) Skilningurinn eykst með hverjum deginum en mér finnst ég ekki geta talað neitt enda held ég að það komi seinast. Það gengur orðið vel hjá Kristjáni á leikskólanum nema að hann hefur verið að grípa allar pestir og verið svolítið mikið heima. Týpiskt þegar þau byrja á leikskóla. Jenni er á fullu í skólanum og gengur vel hjá honum. Hann byrjar í prófum 7. janúar svo að jólin fara í að læra hjá honum greyinu. Glataður prófatími en svona er þetta bara.

Er að hlusta þessa dagana á Arcade Fire, Beirut og Jens Lekman, mæli hiklaust með þessum tónlistarmönnum. Jólatónlistin er nú líka byrjuð að læða sér í spilarann og ég og Kristján vorum til dæmis heillengi í dag að hlusta á jólalög og dansa :) Ég er komin í rosa mikið jólaskap, held ég hafi bara aldrei verið svona snemma í því.

Tékkið á þessum
gaur, myndböndin hans eru vibba fyndin.

fimmtudagur, október 18, 2007


Smá update þar sem ég er ekki búin að blogga í langan tíma.
Við vorum að koma úr smá roadtripi um Danmörku með viðkomu í Þýskalandi. Kem með nánari ferðasögu síðar en í fáum orðum sagt var ferðin frábær og við fengum yndislegt haustveður allan tíman. Danmörk er mjög falleg í haustlitunum :)

Í fréttum er þetta helst að ég er komin með vinnu í apóteki sem heitir Enghave Apotek og er nokkurn veginn við endann á Istedgade. Ég byrja á þriðjudaginn og er í senn bæði kvíðin og spennt. Nú þarf ég virkilega að spíta í lófana og ná dönskunni, hugsa að þetta verði hinn besti hraðkúrs í dönsku :)
Með þessu bloggi fylgir mynd af stórri kröfugöngu sem kom fram hjá húsinu okkar út af ungdomshúsinu margumtalaða. Þeir ætluðu að reyna að taka yfir nýtt hús sem er 5 mínútur frá okkur og gengu því Borups Allé. Svo við lestarstöðina okkar, Fuglebakken, var allt brjálað og endaði með óeirðalöggu, táragasi og látum. Þannig að við vorum sem sagt í hringiðunni !!!

fimmtudagur, október 04, 2007

Kristján Ari er byrjaður á leikskólanum í aðlögun og gengur það bara ágætlega. Í gær prófaði ég að fara heim og svo átti ég að koma aftur um 11 leytið en kl hálf 11 var hringt og þá var Kristján víst ansi leiður og ég fór og náði í hann. Þegar ég kom í leikskólann var hann nú búinn að jafna sig og var að háma í sig kjötbollur :) Kristjáni finnst þetta rosalega spennandi og talar mikið um það að fara í leikskólann og leika við krakkana. Þetta er örugglega svolítið skrýtið fyrir hann, sérstaklega þar sem hann skilur ekkert í dönsku enn. Því er öruggara að hafa mömmu nálægt.

Ég er búin að vera haltrandi í viku núna. Tókst að togna á fimleikaæfingu síðastliðinn fimmtudag !!! Var bara að gera arabastökk og lendi þannig að ökklinn sveigðist undir mig og það heyrðist mjög fallegur smellur. Shit hvað þetta var vont. Fór á slysó og þar kom ljós að ég væri bara tognuð sem betur fer. Hugsa að ég sleppi nú fimleikaæfingu í kvöld en vonandi get ég farið í næstu viku.

15. -19. október er haustfrí í skólanum hjá Jenna og við ætlum að skella okkur í ferðalag um Danmörku. Erum búin að leigja bílaleigubíl og svo er það bara að leggja af stað út í óvissuna :) Ég hlakka mikið til því að ég hef bara komið til Kaupmannahafnar, ekki séð neitt meira af Danmörku. Svo koma mamma og pabbi 19. það verður æðislegt.

miðvikudagur, september 26, 2007

Hér eru nokkrar myndir frá síðustu heimsóknum til okkar .

Krúsídúllur

Fjör á Jensens

Pabbi og Kristján Ari


Þá eru gestirnir farnir og það er bara svoldið tómlegt enda búið að vera mjög líflegt seinustu daga :) Kristján Ari og Grímur Steinn eru búnir að vera í essinu sínu og voru voða glaðir að hitta hvorn annan dúllurnar. Steina, Gunna og Grímur komu á fimmtudagskvöldið og fóru í gærmorgun. Það var margt brallað þessa daga og mikið labbað. Löbbuðum Gammel Kongevej á föstudaginn en ég hef aldrei komið þangað áður. Fullt af skemmtilegum litlum búðum. Enduðum niður í bæ og röltum Strikið. Um kvöldið fórum við á Jensens við Gråbrødretorv og fengum mjög góðan mat. Strákarnir litlur fóru á kostum þar og voru ótrúlega þægir :) Á laugardaginn fórum við í Frederiksberg Centret sem er lókal mollið hér og þar var svoldið verslað. Veðrið var æðislegt, sól og 18 stig og settumst við út og fengum okkur bjór eftir eyðsluna :) Um kvöldið elduðum við heima og Vigdís og Eiki vinir Gunnu sem búa hérna komu líka. Svo bættist í hópinn eftir kvöldmat og það varð bara ágætis partý hérna. Kristján og Grímur sváfu eins og steinar og urðu ekki varir við neitt. Við kíktum svo út á lífið og amman passaði. Það var mikið fjör og fullorðna fólkið var svoldið ryðgað daginn eftir þegar við kíktum í dýragarðinn ;) Á mánudaginn var kíkt í rölt í bænum og við Gunna fórum með strákana á Istedgade að skoða flottu búðirnar þar. Ég keypti mér ógó flott veski :) Þetta voru rosalega skemmtilegir dagar og ferðalangarnir fóru sáttir heim í gær.

Í kvöld er það svo bíóferð, ætla að fara að sjá Mýrina. Það er verið að sýna hana á kvikmyndahátíð hér.

miðvikudagur, september 19, 2007

Ég og Kristján fórum að skoða leikskólann hans í gær. Það var tekið mjög vel á móti okkur og var labbað með okkur um allan leikskólann. Kristján var mjög feiminn fyrst en svo jafnaði hann sig og var farinn að leika sér aðeins. Það verður frábært fyrir hann að leika sér við aðra krakka og hafa fasta rútínu yfir daginn. Held hann sé orðinn svoldið þreyttur á að hanga alltaf með mér :) Deildin hans heitir Mjælkevejen og þar eru 13 börn og 4 fullorðnir að sjá um þau, 2 leikskólakennarar og 2 leiðbeinendur. Þetta leggst bara rosalega vel í mig og ég er miklu minna stressuð fyrir þessu.

Pabbi kom í stutta heimsókn á laugardaginn og það var mjög gaman að fá hann í heimsókn. Hann hefði bara mátt vera lengur en hann fór aftur á sunnudaginn. Kristján var mjög glaður að sjá afa sinn og er ennþá að spyrja hvar afi sé. Var ekki alveg sáttur að hann skyldi fara svona fljótt :)
Við fórum með pabba á Strikið og röltum svo niður á Nýhöfn og settumst þar niður. Um kvöldið fórum við út að borða á Jensens Bøfhus og fengum mjög góðan mat.

Í gærkvöldi var Spatúlusaumó hjá Maju og það var rosalega fínt. Alltaf nóg af spjalli og slúðri :)

Í dag er ég að hugsa um að demba mér út í IKEA geðveikina en mig vantar nokkra myndaramma og lítinn sætan lampa. Ég miða við að fara þegar Kristján þarf að taka lúrinn sinn því að honum finnst ALLS EKKI gaman í IKEA. :)

Á mánudaginn er svo atvinnuviðtal !!!!!!!

föstudagur, september 14, 2007

Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur í vikunni. Vorum með Eddu, Hjalta, Smára og Kidda í mat á miðvikudagskvöldið og það var mjög gaman. Í gærkvöldi hitti ég svo allar íslensku stelpurnar sem búa í blokkinni í nk saumó. Það var rosalega gaman og er stefnan að hafa svona stelpukvöld einu sinni í mánuði. Pabbi kemur svo á morgun og fer aftur á sunnudaginn. Í næstu viku koma svo Steina tengdamamma, Gunna hans Villa og Grímur litli. Þau verða í 5 daga og það verður rosalega gaman að fá þau. Mamma og pabbi koma svo seinni part október og Edda systir í byrjun nóvember.
Fór aftur í fimleika í gær og er mjög ánægð með þessar æfingar og ætla pottþétt að halda áfram í vetur.
Á mánudaginn fer ég svo að skoða leikskólann hans Kristjáns Ara og ég hlakka svolítið til. Gaman að sjá hvernig þetta er og hvernig leikskólakennararnir eru.

föstudagur, september 07, 2007

Ég skellti mér á fimleikaæfingu í gærkvöldi. Djíí hvað var gaman. Þetta er svipaður hópur og ég var í heima á Íslandi. Eini munirinn er sá að við þurfum að ná í allt dótið og raða upp dýnum og trampólíninu og taka svo saman eftir á. Ég er svo ánægð að hafa fundið þennan hóp. Æfingarnar eru á fimmtudagskvöldum milli 18-20. Ég var eini úllinn þarna og ég var ekki að skilja allt en ég skildi samt heilmikið. Kom sjálfri mér á óvart.
Núna er algjör blíða hérna í Kaupmannhöfn, sól og örugglega 18 stiga hiti. Mjög næs. Hjólaði áðan með Kristján Ara í garð sem heitir Grøndalsparken og þar er ágætis leikvöllur. Fórum með nesti og lékum okkur þarna í dágóða stund.

Á mánudaginn hitti ég Valdísi og Jóa en þau voru í stuttu stoppi hérna. Voru að koma úr brúðkaupsferðinni frá Tælandi og á leiðinni til Árósa að heimsækja bróður hans Jóa. Það var rosalega gaman að hitta þau. Þú manst Valdís það er Köben í vor !!!!!

Pabbi ætlar svo að kíkja í eina nótt 15. sept. Hann er að fara í vinnuferð til Parísar og ætlar að millilenda hér. Hlakka mikið til að fá hann. Hugsa að hann sé líka ansi spenntur að hitta afastrákinn sinn :)

Á morgun erum við svo að spá í að fara til Malmö með Hjalta og Eddu og tveimur öðrum pörum. Hjalti er með Jenna í skólanum og Edda er konan hans. Þau eiga tæplega 2ja ára strák, Birki, og voru að flytja í blokkina okkar. Ég og Edda fórum einmitt með strákana í gær í Ørstedsparken (þar sem er rosa flott leiksvæði) og þar léku strákarnir sér. Mjög gaman.

laugardagur, september 01, 2007

Helstu fréttirnar þessa vikuna eru þær að Kristján Ari er kominn með pláss á leikskóla frá 1. október n.k. Þetta er leikskóli sem er blandaður þ.e. þar er vöggustofa og børnehave. Kristján byrjar á vöggustofunni og kemst svo á børnehave 3ja ára. Leikskólinn heitir Stjernen og er í 5 mínútna göngufjarlægð frá okkur sem er æðislegt. Ég ætla að hafa samband við leikskólann í næstu viku og fá að skoða. Það verður frábært þegar verður búið að aðlaga hann þangað inn og hann getur farið að ærslast með öðrum krökkum :)
Við höfum það gott saman mæðginin og finnum okkur alltaf eitthvað að bralla. Fórum t.d. á fimmtudaginn niður í bæ á National Museet sem er svona þjóðminjasafn þeirra Dana. Mjög skemmtilegt safn og margt fróðlegt að sjá og svo er líka frítt :) Seinni part fimmtudags fór ég svo í klippingu með Kristján upp á Norrebrogade þar sem að nokkrir íslenskir klipparar eru að vinna. Þá var sú sem að átti að klippa Kristján náttúrulega kunningi Eddu sys síðan úr Seljaskóla, ótrúlega lítill heimur. Þessi klippiferð var því miður engin sigurför heldur þvert á móti. Kristján Ari er skíthræddur við klippara og vill ekki láta klippa á sér hárið. Lilju (klippara) tókst að klippa á honum toppinn, thats it !!! Ég þurfti að hætta við og fara því að Kristján var bara trylltur úr hræðslu. Ég var ekki látinn borga neitt og hún gaf mér góð ráð við að klippa hann sjálf :) Ég með mína 10 þumalputta, veit ekki. Verð samt að prófa svo Kristján endi ekki með að líta út eins og lukkutröll.
Svo var loka IKEA ferðin í gær og við keyptum okkur m.a. nýtt sófaborð, lítið hornborð (bráðabirgða samt) og borð til að setja út á yfirbyggðu svalirnar okkar og 4 stóla við það. Rosa fínt. Ég hjólaði svo niður í bæ í dag og fór í búðir sem heita Notre Dame og ROOM og keypti dúk, mottu, kertastjaka, kerti, bastkörfu og fleira skemmtilegt. Æðislegar búðir. Við erum í góðum málum núna og í dag ætlum við að hengja upp hillur og myndir og jafnvel ljósin okkar.

laugardagur, ágúst 25, 2007

Það er hreinlega verið að éta mig lifandi hérna. Litlar flugur sem kallast myggur finnst ég svona óskaplega góð á bragðið. Er komin með a.m.k. 6 bit :( Var t.d. bitin á handarbakið og ég hef aldrei vitað annað eins, er búin að vera með tvöfalda hendi í tvo daga. Þetta er að hjaðna núna en mér leist nú ekkert á blikuna þarna á tímabili. Þarna kom vel á vondan því ég hef nefnilega verið dugleg að monta mig á því að vera aldrei bitin !!!
Jenni fór á introfest í skólanum í gær og því var ég bara ein í kotinu í gærkveldi. Þetta er gert til að bjóða nemendurna velkomna og þjappa hópnum saman. Mér skilst það hafi verið mikið fjer ;)
Ég horfði á Stargate í gærkveldi með James Spader og Kurt Russel. Ekkert svo frábær mynd en mér finnst nú alltaf gaman að horfa á James Spader, sérstaklega á sínum yngri árum ;) ;) Ég hef ekki séð lögfræðiþættina með honum en mér sýndist hann Djeims vera orðinn ansi mikill kall í þeim !!!

Annars er ég dottinn niður í slúðursíðurnar perezhilton.com og dlisted.com. Hrikalega fyndin komment um stjörnunar þarna og svo nýjustu sögurnar. Það er mikilvægt að fylgjast með þeim ríku og frægu.

Ætla svo að hitta hana Möggu Lindu í dag en hún er stödd hérna í Köben með vinkonu sinni. Það verður gaman að hitta hana en það er ansi langt síðan síðast.

þriðjudagur, ágúst 21, 2007

Tíminn líður og við erum allt í einu búin að vera hér í tvær vikur. Mér finnst við vera nýkomin út.
Valur og Halli fóru heim í gær og ég held bara að þeir hafi skemmt sér vel hérna í Kaupmannahöfn.
Helgin var fín, við fórum í dýragarðinn á föstudaginn með gestunum. Kristján Ari skemmti sér konunglega og átti ekki orð yfir öllum dýrunum. Skemmtilegasti hluturinn í dýragarðinum var þó stór leikkastali og hann var sko ekkert á því að fara úr honum :)
Á laugardaginn fórum við í Fields sem er risastór verslunarmiðstöð út á Amager. Jenni keypti sér hjól og við keyptum líka barnasæti á hjól og hjálm á Kristján Ara. Á sunnudaginn setti Jenni stólinn á hjólið mitt og við fórum í smá hjólatúr. Kristjáni Ara fannst þetta alveg meiriháttar gaman. Ég þarf samt aðeins að venjast því að hafa hann aftan á hjólinu mínu. Aðeins erfiðara að halda góðu jafnvægi. Annars er það algjör snilld hversu þægilegt er að hjóla hérna, við eigum eftir að gera mikið af því.
Veðrið hér er ágætt, kringum 20 stigin en alltaf skýjað. Væri alveg til í meiri sól :)
Ég skráði mig og Kristján á leikfiminámskeið sem er fyrir 2-4 ára krakka. Námskeiðið verður einu sinni í viku í 12 vikur og er hver tími 45 mínútur. Þetta er bara hérna í næstu götu og ég held þetta verði fín útrás fyrir Kristján Ara. Gaman að ærslast með krökkum á sínum aldri :)

föstudagur, ágúst 17, 2007

Hér frá Kaupmannahöfn er allt gott að frétta. Jenni byrjaði á mánudaginn í skólanum og honum líst bara vel á þetta. Þetta er náttúrulega svolítið strembið fyrst þegar hann er ekki búinn að ná málinu alveg en hann skilur meira með hverjum deginum. Það eru tveir íslenskir strákar með honum í skólanum sem er frábært. Þeir geta þá hjálpað hver öðrum. Annar þeirra er meira að segja að flytja í bygginguna okkar með konu og 19 mánaða strák. Það verður gaman fyrir Kristján að fá leikfélaga í nágrennið :) Við erum búin að sækja um leikskólapláss fyrir Kristján Ara en hann er ekki öruggur inn fyrr en eftir 2 mánuði !!!! Frekar langur tími, ætli hann verði ekki orðinn hundleiður á mömmu sinni þá :)
Valur bróðir og Halli vinur hans eru staddir hérna og eru búnir að vera á hóteli síðan á sunnudaginn. Þeir koma til okkar í dag og gista fram á sunnudag. Það verður gaman að hafa þá og það kemur sér vel að við erum búin að fá okkur þennan fína svefnsófa :)

fimmtudagur, ágúst 09, 2007

Núna er 25 stiga hiti takki fyrir, erum búin að opna alla gluggana á íbúðinni og sem betur fer er svolítið gola. Þetta er alveg yndislegt, maður er bara á hlírabol og stuttbuxum allan daginn :)
Ég fór í annað atvinnuviðtal í gær og mér leist rosalega vel á þá vinnu en það kemur í ljós í næstu viku hvort ég kemst í viðtal tvö.
Fórum í IKEA í dag og keyptum aðeins inn. Það er frekar fyndið að koma þangað, búðin er alveg eins og á Íslandi. Manni fannst maður bara vera kominn heim.
Ég er eitthvað að rembast við að tala dönsku í búðunum og það gengur bara ágætlega þangað til þeir fara að segja eitthvað við mig þá skil ég ekki orð. Þeir tala svo hratt og það er svo erfitt að greina orðin, úff. Það er samt um að gera að vera þrjóskur og reyna að tala þá kemur þetta hraðar. Ég er nú bara búin að vera hérna í fjóra daga ;)
Hendi myndum inn á Barnaland bráðlega.

mánudagur, ágúst 06, 2007

Komin til Kaupmannahafnar!!!

Við mæðginin komum í gær í þessa sól og blíðu. Jenni kom og tók á móti okkur og Kristján Ari var rosalega ánægður að hitta pabba sinn. Vildi ekki sleppa honum úr augnsýn :) Það var ansi gott að hitta Jenna aftur, geri þetta ekki aftur í bráð. Fórum svo beint í íbúðina og ég er mjög ánægð með hana. Björt og sæt íbúð.
Ég byrjaði daginn í dag á að fara í atvinnuviðtal og var frekar stressuð fyrir það en ég held þetta hafi gengið allt í lagi. Er svo að fara í annað viðtal á morgun þannig að það er nóg að gera :)
Kristján Ari er 2ja ára í dag og við fórum í Tivolí. Það er alltaf gaman að koma þangað og Jenni fór í falltækið og ég í rússíbanann ;) Kristján fékk svo að fara í hringekju. Það er mjög heitt og sól og blíða. Við löbbuðum svo heim úr bænum en það tekur svona 45 mínútur.
Á morgun er svo planið að skrá sig inn í landið og sækja um leikskólapláss fyrir Kristján Ara.
Það er ótrúlega skrýtið að vera allt í einu komin hingað en þetta leggst bara vel í mig.

mánudagur, júlí 23, 2007

Skellti inn einni mynd af prinsinum :)














14 dagar til stefnu !!!

Helgin var fín. Var í fríi á föstudaginn og gat þá klárað allt stúss sem eftir var. Nú er ekkert eftir nema að pakka niður :) Fórum á ættarmót á laugardaginn og það var mjög gaman. Kristjáni Ara fannst æðislegt og fór út um allt að skoða. Toppurinn fyrir hann var þó hoppukastali sem var á svæðinu. Það var svo gaman að fylgjast með Kristjáni í honum, hann var bara eitt bros og það var hægara sagt en gert að koma honum þaðan. Ég fór með Kristján til ömmu sinnar og afa í Kópavoginum í gær og þar ætlar hann að láta dekra við sig þangað til á morgun. Fór svo að sjá Harry Potter í gærkvöldi með Val bro. Ágætis mynd bara og Gary Oldman er flottur Sirius Black, úllala. Nú verð ég að fara að næla mér í nýju bókina og lesa hana. Ég er nefnilega dauðhrædd að einhver leki endinum og maður fái að vita hverjir deyja og það vil ég ekki vita fyrr en ég les bókina.

föstudagur, júlí 20, 2007

Það er gott að eiga frí á föstudegi :)

Ég fór með Kristján í seinasta skipti til Jóku (dagmömmu) í morgun. Ég ætla að sækja hann í dag og gefa Jóku smá gjöf fyrir að hafa hugsað svona vel um Kristján. Kristján er líka búinn að vera svo ánægður hjá henni og hann verður örugglega ekki sáttur að fá ekki að fara til Jóku aftur. Þetta verður svolítið skrýtið.

Það er nú samt spennandi að sjá fram á breytta tíma. Þótt það verði örugglega erfitt að skilja hann eftir á dönskum leikskóla þá held ég að Kristján eigi eftir að vera sáttur. Fullt af krökkum til að leika sér við og margt nýtt spennandi til að læra.

17 dagar í Köben !!!!!

mánudagur, júlí 16, 2007

Smá breyting á plönum.
Er búin að breyta fluginu yfir á 6. ágúst. Þá höfum við viku saman áður en Jenni byrjar í skólanum. Gat losnað við að vinna 7. ágúst þannig að það var drifið í að breyta fluginu.
Jenni fær gáminn á morgun og þá verður lífið mun skemmtilegra fyrir hann. Getur hætt í útilegufílingnum :)

Það er svo brjálað að gera í vinnunni núna að ég held ég hafi aldrei kynnst öðru eins. Þvílíkt magn af ferðafólki sem fer hérna í gegn. Ótrúlegt hvað veðrið hefur mikil áhrif á traffíkina. Maður er gjörsamlega búinn á því eftir daginn. Þetta er samt allt í lagi, dagarnir fljúga áfram og það er gaman í vinnunni í svona ös.

Nældi mér í frí á föstudaginn til að lengja helgina aðeins sem er sko aldeilis fínt. Erum að fara fjölskyldan á ættarmót í Húnaveri um helgina. Það hefur ekki verið ættamót síðan '92 svo það verður örugglega fjör.

miðvikudagur, júlí 11, 2007

Þá er Jenni minn farinn til Kaupmannahafnar og við hittumst ekki fyrr en eftir mánuð, nánar tiltekið 9. ágúst. Það verður skrýtið að hittast ekki í svona langan tíma en ég hugsa að tíminn verði nú fljótur að líða hjá mér. Nóg að gera í vinnunni og dagarnir þjóta áfram. Ég heyrði í honum í dag og þá var hann kominn í íbúðina og leist bara vel á. Gámurinn kemur ekki fyrr en eftir viku þannig að þangað til verður hann kúldrast í tómri íbúð með vindsæng, svefnpoka og fartölvuna. Vonandi verður veðrið betra þarna svo hann geti bara verið úti allan daginn. Ég er svo forvitin að sjá íbúðina og hverfið að ég er að deyja, finnst svolítið skrýtið að Jenni sé þarna en ekki ég.
Ennþá vill enginn ráða mig í vinnu en ég held ótrauð áfram að sækja um, það þýðir ekkert annað en að vera jákvæður og bjartsýnn :)

miðvikudagur, júlí 04, 2007

Þá er gámurinn farinn frá okkur og fer úr landi á morgun. Skrýtið að hugsa til þess að aleigan manns sé í einhverjum gámi að velkjast út á sjó. Vonandi dettur hann ekki í sjóinn !!!!
Við erum næstum því búin að þrífa íbúðina, eigum eftir að taka eitt kvöld í viðbót og svo getum við bara afhent hana. Ég fékk smá saknaðarsting í magann í gær þegar ég var að þrífa, þetta var nú ansi góð íbúð og okkur leið vel þarna :) Við erum komin aftur í kjallarann hjá mömmu og pabba og það fer bara ágætlega um okkur, erum búin að henda greyið Val út úr herberginu sínu en hann er svo góður bróðir, finnst ekkert mál að leyfa okkur að vera þarna. Kristján Ari er svolítið áttavilltur núna, hann vill bara fara heim. Heyrist stundum í honum, jæja heim !!! Dúllan :) Þetta verða viðbrigði fyrir hann sérstaklega þar sem hann er svo vanafastur (eins og pabbi sinn).

fimmtudagur, júní 28, 2007

Það er allt á fullu hjá okkur núna, Jenni er sveittur heima að pakka á meðan ég er í vinnunni. Gámurinn komin og við flytjum til mömmu og pabba um helgina. Gámurinn fer í bæinn á miðvikudaginn, út úr landinu föstudaginn og kemur svo til Kaupmannahafnar viku seinna, þann 13. júlí. Jenni fer út 11. júlí og verður því í tómri íbúð í tvo daga. OMG þetta er bara að gerast, ég trúi því ekki. Hrikalega er tíminn fljótur að líða. Ég á bara eftir að vinna í rúman mánuð og svo er ég farin af landi brott. Það er nú komin tilhlökkun í kroppinn, þetta leggst bara vel í okkur að búa í Kaupmannahöfn. Ég vooona að ég þurfi ekki að leita að vinnu of lengi, það er eini óvissuþátturinn. Maður reddar sér þá bara einhvern veginn öðruvísi, fer bara að vinna í búð eða e-ð.